Siðblindingjar

07/10 2011 § 3 athugasemdir

Lífgunartilraunir báru ekki árangur.

Kindillinn minn lá í rúminu þegar ég hlunkaðist í það, olnboginn lenti beint á skjánum sem brotnaði. Minningarnar með kindlinum eru mér ljóslifandi, allar stundirnar sem við höfum átt saman víða um heiminn síðasta rúma árið. Nú get ég ekki lesið bækurnar sem ég var með þar inni, ég á afrit af þessu öllu en þarf að bíða nýrrar græju til að geta byrjað upp á nýtt. Blessunarlega mun það ekki taka lengri tíma en mánuð, fari allt að óskum. Og blessunarlega er þessi græja frekar ódýr.

Þegar allt kemur til alls er kannski ekki skrýtið að þetta hafi gerst, litli snúllinn hefur fylgt mér hvert sem ég fer, er í jakkavasanum, sófanum, uppí rúmi og ofan í tösku. (Hann fer aldrei inn á klósett. Það er regla.)

Þangað til ég fæ nýjan verð ég bara að rifja upp bækurnar sem ég hef lesið nýlega með föllnum vini mínum. Ein þeirra er bókin The Psychopathy Test eftir Jon Ronson. Þetta er klassísk blaðamannabók, eins og Moonwalking with Einstein sem ég sagði frá í síðustu færslu. Hún byrjar á að Ronson fær verkefni sem einkaspæjari, sem dregur hann inn á slóðir siðblindra og siðblindu.

Það sem fékk mig til að lesa bókina var fávísi mín um siðblindu, hvernig hún lýsir sér, hvernig hún er greind og hvað hægt er að gera við henni. Bókin svarar spurningunum á afar auðlesinn og spennandi hátt. Ekki að þetta sé eins og Da Vinci lykillinn eða Veröld Soffíu, heldur svona eins og svakalega löng grein í Vanity fair eða The Atlantic.

Það sem sameinar Moonwalking with Einstein og The Psychopathy Test er að þær eru báðar blaðamannabækur. Blaðamenn eru sendir í eitthvað verkefni, komast að því að efni þess á skilið að um það sé skrifuð bók, og svo skrifa þeir bókina. Báðir voru blaðamenn meðan þeir skrifuðu, og náðu með lagni að selja greinar til fjölmiðla og geta samtímis skrifað kafla í bókina sína; slógu þannig tvær flugur í einu höggi. Svona blaðamannabækur eru mikið gefnar út hér í Svíþjóð, sem og debatt-bækur, sem eru frekar stuttar bækur sem draga saman rannsóknir og skoðanir á einhverju málefni.

Ísland hefði gott af fleiri bókum í þessum stíl.

§ 3 Responses to Siðblindingjar"

Leave a Reply

Your email address will not be published.

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

Þú ert hér

Þú ert að lesa innlegið Siðblindingjar á vefsíðu Gylfa Ólafssonar.

Upplýsingar