Juholt er hættur. Hann sté úr stóli á sunnudaginn var og eftir baktjaldamakk — gildishlaðið orð sem fylgismenn annarra aðferða við val á formanni nota — var Stefan Löfven valinn. Ekki kosinn, heldur valinn.
Juholt hafði gert bommertur, talað af sér og verið hálf bjánalegur eitthvað þessa tíu mánuði sem hann var formaður. Svo tók hann náttúrulega þátt í mottumars árið um kring, og var hæddur að launum.
Ein af nýlegri háðsglósunum sem hann fékk var frá 16. janúar, sumsé áður en Juholt hætti, þar sem Pär Henriksson, sem er svosem enginn sérstakur, spurði á Twitter hvort það væri ekki alveg útilokað að Juholt væri lokaverkefni í listaháskólanum Konstfack.
* * *
Nú hefur verið upplýst að H&M auglýsingarnar í búðargluggum á Laugarveginum voru gjörningur listaháskólanema.
Fréttinni lýkur á þessum orðum:
Það voru þó ekki allir jafn hrifnir af gjörningi þessara upprennandi listamanna. Eftir að frétt Vísis um boðaða opnun H&M verslunar á Íslandi birtist fékk ritstjórnin símtal þar sem kvartað var undan birtingu fréttarinnar og sagt að hún gæti haft verðmyndandi áhrif á bréf í Högum, sem er skráð í Kauphöll Íslands.