Leslistinn

Leslistinn, frábært fréttabréf um áhugavert lesefni, fékk mig í ráðuneyti sitt. Hér er það sem ég lagði í púkkið með krúsídúllum frá Kára Finnssyni, öðrum umsjónarmannanna. Velkominn í ráðuneyti Leslistans, Gylfi. Hann Sverrir sér yfirleitt um að bjóða í Ráðuneytið og er oftast með bakkelsi og kaffi á boðstólnum. Ég er ekki alveg jafn huggulegur… Continue reading Leslistinn

Vestfirðir: Bestir fyrir hjólandi

Birt á BB.is í maí 2019. Það eru væntanlega fréttir fyrir marga, en Vestfirðir eru höfuðstaður hjólreiða og göngu. Í þremur rannsóknum í röð—2012, 2016 og 2017—voru Vestfirðingar marktækt líklegri en íbúar annarra landshluta til að ganga eða hjóla til vinnu þrisvar eða oftar í viku. Þetta segja lýðheilsuvísar Embættis landlæknis. Lýðheilsuvísarnir, sem eru áhugaverðir… Continue reading Vestfirðir: Bestir fyrir hjólandi

Borgarörin: fjölskylduhjól í hversdeginum

Á leið í Norræna húsið með tvö börn og aukahjól í hjólinu.

Frá því að eldri dóttir mín fæddist hefur mér fundist gaman að hjóla með hana. Eftir því sem hún hefur vaxið smám saman upp úr hjólastólnum sem ég hef fyrir hana á götuhjólinu mínu, og þegar von var á öðru barni, fór ég hinsvegar að verða óþreyjufullur að finna aðra og betri lausn á málinu.… Continue reading Borgarörin: fjölskylduhjól í hversdeginum

Ritdómur um Veröld í vanda

Wendy Quadling/Wikipedia

Eftirfarandi grein var skrifuð sumarið 2016, áður en bæði Ari Trausti fór í framboð fyrir Vinstri græn, og áður en ég fór í framboð fyrir Viðreisn. Hugmyndin var að fá greinina birta í einhverju formi í fínum ónefndum miðli en svarið stóð á sér og greinin gleymdist. Mér finnst ágætt að birta það sem ég… Continue reading Ritdómur um Veröld í vanda

Hvað eiga sokkaleisti, brauðhleifur og grjóthnullungur sameiginlegt?

Þetta byrjaði að því er virðist með saklausri færslu á blogg sem ég opnaði í ágúst 2004. Einstaklingar Einstaklingar er fáránlegt orð. Staklingur er miklu betra, því maður getur ekki verið stakur nema vera einn. Næstu vikur virðist mér þetta hafa verið hugleikið, því í september er opnaður gagnagrunnur um sokkaleistaorð. Þar var sokkaleistaorðum lýst svo: Sokkaleistar… Continue reading Hvað eiga sokkaleisti, brauðhleifur og grjóthnullungur sameiginlegt?

Útvarp Ísafjörður

Tinna Ólafsdóttir, ég og Þorsteinn Másson

Í febrúar og mars gerðum við Þorsteinn Másson, sjómaður, og Tinna Ólafsdóttir, textasmiður (og eiginkona mín), átta þátta röð hlaðvarpsþátta í hlaðvarpi Kjarnans. Nafnið, Útvarp Ísafjörður, vísar til þess að við erum öll bundin Ísafirði sterkum böndum. Umfjöllunarefni þáttanna voru mörg og mismunandi en að nokkru leyti bundin landsbyggðinni. Í upphafi var lagt upp með… Continue reading Útvarp Ísafjörður

Hugleiðingar taubleyjupabba

Við Tinna notum taubleyjur á barnunga dóttur okkar. Hér á eftir fara nokkrar hugleiðingar því tengdar. Taubleyjur eru upprunalega fyrirkomulagið, það sem notað var í gegnum aldirnar áður en einnota bréfbleyjur komu til sögunnar fyrir ekki svo mörgum áratugum. Af hverju taubleyjur? Fyrir því að nota taubleyjur eru nokkrar ástæður. Í fyrsta lagi er það… Continue reading Hugleiðingar taubleyjupabba

Rennslisvax er hættulegt bruðl

Við Benedikt Hreinn Einarsson undirbúum okkur fyrir Fossavatnsgönguna 2015. Mynd: Haukur Sigurðsson

Þetta er eiginlega vandræðalega mikil stereótýpa, eins og klipptur út úr illa skrifaðri bandarískri kvikmynd frá níunda áratugnum; óbilgjarni og hrokafulli rússneski vísindamaðurinn sem talar erlendar tungur með svo miklum hreim að hann er nær óskiljanlegur. Í þessu tilviki heitir hann Leonid Kuzmin, er búsettur í Svíþjóð og hefur síðasta einn og hálfan áratuginn unnið… Continue reading Rennslisvax er hættulegt bruðl

Gott á górillið

Ég hef líklega heyrt það hjá einhverjum af sniðugu herskáu bresku trúleysingjunum—Dawkins eða Hitchens—að munurinn á eingyðistrú (til dæmis kristni) og trúleysi væri sáralítill. Báðar stefnur hafna þúsundum þeirra guða sem manneskjur dýrka og hafa dýrkað víða um heim. Í reynd skipti það sáralitlu hvort 999 eða 1000 guðum sé hafnað, trúleysi á 99,9% allra… Continue reading Gott á górillið

Ofurlítill skerfur til viðhalds tungunni

Nú eru nokkrir mánuðir liðnir síðan Jón Sigurðsson tók við embætti forseta Hins íslenska bókmenntafélags. Starfinn er mikilvægur því félagið er sögufrægt og hefur lyft grettistaki í viðhaldi og stuðningi við íslenska menningu í ýmsum formum í gegnum tíðina. Á vef félagsins kemur fram sú stefna að standa meðal annars vörð um íslenska tungu á… Continue reading Ofurlítill skerfur til viðhalds tungunni