Trjálundir
Meinhornið
Meinhyrningnum finnst tíma garðyrkjustjóra, garðyrkjudeilda og bæjarvinnubarna stundum skringilega varið. Eitt lítið dæmi um þetta eru litlu trjálundirnir fyrir framan nýja sjúkrahúsið á Ísafirði og við Hvíldarklettshúsin á Flateyri. Lundirnir eru afar óaðlaðandi og draga tæplega að sér marga náttúruunnendur. Úr fjarlægð eru lundirnir ekki fallegir að mati meinhyrnings. Síðast en ekki síst tekur það ómældan tíma margs starfsfólks bæjarins að hirða og halda lundunum við.
Meinhyrningur leggur til að lundirnir verði jafnaðir við jörðu og tyrfðir.