Stígablús
Meinhornið
Meinhyrningur hafði frá því að fyrstu drög komu fram horn í síðu hugmynda um göngustíg meðfram Skutulfjarðarbraut frá íþróttahúsinu að Ljóninu. Meinhyrningur taldi mun heillavænlegra að malbika gamla Seljalandsveginn og búa til einhverja tengingu við Stakkanesið annaðhvort milli áhaldahússins og Orkubúsins eða við það sem nú er athafnasvæði KNH (og var almennt lítið notað á þeim tíma). Þegar stígurinn var tilbúinn og tengdi saman Holtahverfi við eyrina var notkunin þó svo mikil að meinhyrningur hefur viðurkennt að líklega hafði verið rétt að málum staðið. Er meinhyrningi þannig ljúft og skilt að viðurkenna að hafa haft á röngu að standa.
Enn standa þó eftir nokkrir staðir þar sem bæta þarf úr aðgengi. Þannig er orðið löngu tímabært að tengja Holtahverfi við Engidalshringinn, hina svokölluðu Heilsumílu. Til að byrja með mætti gera örstuttan bút fyrir Hafrafellshálsinn, en betra væri þó að taka grasið milli Hafraholts og Skutulsfjarðarbrautar undir og láta stíginn ná alla leið. Gera mætti úrbætur á brúnni yfir að flugvellinum samhliða, e.t.v. með því að breikka slitlagið og/eða færa lítið eitt vegmerkingar svo að gangandi vegfarendur hafi sérmerkt svæði.
Þá er Hnífdalur útundan og hefur tenging við hann lengi verið þarft verkefni. Þá eru ótalin fjölmörg úrlausnarefni sem bíða í öðrum byggðakjörnum Ísafjarðarbæjar, sem meinhyrningur þarf að skrifa um í betra tómi.