Prófkjör sjálfstæðisflokksins
Óflokkað
Þegar þetta er skrifað er Í-listinn ekki búinn að ákveða hvort hann muni bjóða fram saman eða hver í sínu lagi. Ólíklegt er að rauðu flokkarnir vilji burðast með hræið af Frjálslynda flokknum, jafnvel þó Frjálslyndir eigi sitt fylgi einna helst á Stór-Ísafjarðarsvæðinu.
Hvað sem því líður, er búist við fréttum af því bráðlega og þá ættu prófkjörsframboð að streyma inn. Á meðan er ekki úr vegi að líta yfir sviðið hægramegin.
Eiríkur Finnur Greipsson býður sig fram í fyrsta sætið og verður að teljast sigurstranglegur. Hann hefur einhvern þægilegan hreppsstjórablæ yfir sér, og hefur það með sér í margra huga að vera ekki úr Skutulsfirði. Það er hinsvegar afar ósennilegt að ferskir vindar muni koma með Eiríki sem greina má á þeim innantóma orðaflaumi sem sjá má á annars ágætri heimasíðu hans.
Guðfinna Hreiðarsdóttir vill fyrsta sætið og hefur ekki stofnað enn heimasíðu utan um framboðið. Það hlýtur þó að vera tímaspursmál. Guðfinna hefur reynslu úr því sem oft er kallað kaffiuppáhellingadeild stjórnmálalífsins en litla stjórnunarreynslu sem vinnur nokkuð á móti henni. Þá er óvíst hvar Guðfinna endar og maðurinn hennar byrjar, sérstaklega þegar ekki er vitað hvað hann mun taka sér fyrir hendur að kosningum loknum.
Gísli Halldór Halldórsson vill einnig í fyrsta sætið. Hann er einn fárra kvótakerfisandstæðinga innan flokksins. Um Gísla eru skiptar skoðanir en klárlega margir sem vilja sjá veg hans sem mestan.
Margrét Halldórsdóttir gefur kost á sér í 2-3 sætið. Áherslumál hennar virðast vera ábyrgur rekstur sveitarfélagsins og velferðarmál, en lítið í hendi hjá henni eins og öðrum hvernig skera eigi niður eða forgangsraða.
Ingólfur Þorleifsson hefur einnig gefið kost á sér í 2. sætið. Af blogginu hans að dæma verður ekki séð annað en að hann sé enn einn moggabloggarinn með flokksskírteini, með öllu því sem því fylgir.
Þessi færsla verður uppfærð þegar endanlegur listi kemur út. Framboðsfrestur rennur út 22. janúar.