Um

Vefurinn Ísafjarðarbær.is er vefur áhugafólks um samfélags- og byggðamál og sameiningarmál sveitarfélaga. Vefurinn er ekki í eigu Ísafjarðarbæjar. Hann er ekki ætlaður til endursölu eða keyptur með það í huga að selja háu verði, heldur til að koma skoðunum síðuhaldara á framfæri.

Efnið er skrifað af ýmsu fólki héðan og þaðan úr samfélaginu, og sé nafns ekki getið tekur Gylfi Ólafsson ábyrgð á skrifunum.

Ísafjarðarbær varð til 1996 við sameiningu sveitarfélaga. Þegar fest voru kaup á þessu léni voru 13 ár síðan og hafði sveitarfélagið ekki haft sig í það að kaupa lénið. Er ljóst að bænum hefði verið í lófa lagið að gera það og undirstrika þannig að Ísafjarðarbær sé nýtt sveitarfélag en ekki yfirtaka Ísafjarðar á nágrannasveitarfélögunum.