Manifesto

Sameining sveitarfélaga

Byggðasamlög fyrst: Ef hagkvæmt er að sameinast yfir sveitarfélagamörk um veitingu þjónustu ætti að nýta það áður en farið er í heildarsameiningu sveitarfélaga. Byggðasamlög um þjónustu eru frábær.

Enga samkennd: Það er óþarfi og ekki í verkahrings bæjarfélaga að auka samkennd milli byggðarlaga. Hvert byggðarlag á að hafa sína menningu, sínar bæjarhátíðir, sín þorrablót og sinn hverfaríg í friði.

Ekki sameina íþróttafélög: Íþróttafélög eiga að ráða sjálf hvernig þau haga starfsemi sinni og sameinast þá og því aðeins að það komi íþróttastarfinu til góða.

Ekki ný nöfn: Íbúar sveitarfélagsins eiga ekki að fá ný nöfn í takt við nýtt nafn sameinaðs sveitarfélags. Íbúar heita eftir þeim byggðakjarna sem þeir búa í en ekki eftir þeirri stjórnsýslueiningu sem þeir tilheyra.

…en: Það er um að gera að ný sveitarfélög sem verða til fái ný heiti sem ekki tengjast beint heitum þeirra sveitarfélaga sem í það renna. Þannig var það sniðugt að búa til nöfn eins og Fjarðabyggð og Reykjanesbær, en Ísafjarðarbær er síðra vegna þeirrar tilfinningar sem það gefur um að Ísafjarðarkaupstaður gamli hafi gleypt hina bæina.

Ekki ný póstnúmer: Það er alger óþarfi að hrófla við póstnúmerum eða nöfnum póststöðva. Íslandspóstur ætti ekki að haga sínum dreifileiðum eftir sveitarfélagamörkum heldur hagkvæmni og einfaldleika. Á sama hátt: ekki raða símaskránni eftir sveitarfélögum heldur eftir byggðakjörnum.

Heimasíðan er mikilvæg: Sveitarfélög ættu að eiga lén samstætt nafni sínu.

Ísafjarðarbær

Ráðdeild: Þeir eru margir sem telja að ráðdeild og forgangsröðun sé bara úrlausnarefni og handavinna, en það er ekki rétt. Forgangsröðun þýðir að ýmis þjónusta verður ekki veitt, og til að fella hana niður þarf kjark og samræmi.

Íþróttamannvirki: Enga nýja sundlaug, takk. Það vantar tilfinnanlega að Ísafjarðarbær, sem veitir íþróttafélögunum meirihluta rekstrarfjárs þeirra, setji sér skýr markmið um það hvaða íþróttagreinar verði styrktar (bæði aðstaða og rekstur), og þannig hvaða íþróttir verða ekki styrktar. Bærinn verður að velja og hafna.

Sameinast: Ísafjarðarbær, Súðavíkurhreppur og Bolungarvíkurkaupstaður eiga að sameinast.