Við erum örugg og snögg að fara yfir íslenskan texta af öllu tagi. Bloggfærslur, námsritgerðir, fréttabréf og matseðlar eru dæmi um verkefni sem við getum tekið að okkur.
Fyrst og síðast leiðréttum við stafsetningu og málfar.
Við förum líka sérstaklega yfir greinamerkjasetningu, pössum til dæmis að réttu gæsalappirnar séu notaðar og svo framvegis.
Mikilvægt er að orðavalið henti tilefninu og við höfum augun opin fyrir því. Málsnið er þó mjög mismunandi eftir miðlum og við hrærum að sjálfsögðu ekki í því nema innan hóflegra marka.
Við erum best í íslensku en við erum skrambi góð í ensku líka. Ef við erum hvort eð er farin að vinna fyrir þig getum við allt eins séð um allan pakkann. Við höfum bæði reynslu af því að skrifa, yfirfara og þýða texta yfir á ensku. Ef við erum að fara yfir texta á ensku gildir almenna verðskráin. Ef verkefnið er flóknara gerum við fast verðtilboð fyrirfram.
Við lögum okkur að þínum þörfum! Þó þessi klisja eigi við í okkar tilviki, það er að við getum líka skrifað texta frá grunni, reynum við að sigla framhjá svona klisjuskerjum eins mikið og hægt er.
Við ábyrgjumst að skila af okkur öllum verkum undir 2000 orðum innan 6 klukkustunda. Það er 9-23 alla daga vikunnar, meira að segja laugardaga og sunnudaga. Sé meiri asi á þér en svo að þetta fyrirkomulag dugi til getum við reynt að koma til móts við þig, en þá leggjum við 20% ofan á venjulegt gjald.
Sama loforð gildir um verðtilboð. Við gerum föst verðtilboð innan 6 klukkustunda.
Ég er uppalin á Flateyri og í Mývatnssveit.
Ég er stúdent frá Menntaskólanum á Ísafirði
Ég er að læra mannfræði við Háskólann í Stokkhólmi.
Ég hef fengist við blaðamennsku, enskukennslu og fleira.
Ég er uppalinn á Ísafirði
Ég er stúdent frá Menntaskólanum á Ísafirði og grunnskólakennari frá Háskólanum á Akureyri.
Ég nem hagfræði við Háskólann í Stokkhólmi.
Ég hef unnið margvísleg störf innan ferðageirans. Þá hef ég kennt, skrifað og þjálfað skíðagöngu svo eitthvað sé nefnt.
Saman búum við í miðborg Stokkhólms. Við erum bæði mjög fær í réttritun í íslensku og ensku auk þess sem við tölum sænsku sem og hrafl í spænsku.
Við getum tekið við gögnum á ýmsan hátt. Hægt er að senda okkur póst með textanum eða senda okkur póst með tengil á textann ef búið er að setja hann inn á vefsíðuna.
Okkur finnst mjög sniðugt, þar sem því er viðkomið, að vakta RSS-strauma. Margir vefir hafa fréttir eða ýmis innlegg tengd RSS-straumum. Þá er hægt að setja færslurnar inn strax og hægt er, en um leið og við sjáum fréttina skjóta upp kollinum í RSS-strauminum hlaupum við til og leiðréttum. Í sumum tilvikum getur þetta verið betra, það er að drífa það af að setja texta inn á vefsíðuna en síðan er textinn leiðréttur eins fljótt og hægt er.
Skilvirkasta leiðin fyrir okkur til að fara yfir vefsíður er að gefa okkur aðgang að umsýslukerfi vefsíðunnar. Þá þarf ekki að afrita fram og til baka heldur eru gögnin leiðrétt beint. Best er að láta okkur þá fá sérstakt notandanafn og lykilorð að vefumsýslukerfinu. Ef það er ekki hægt er óþarfi að hafa áhyggjur, við erum traust og básúnum ekki trúnaðarupplýsingar út um allan bæ.
Við getum að sjálfsögðu tekið við og skilað ýmsum ritvinnsluskjölum. Þægilegast er að nota „track changes“ valmöguleikann í ritvinnsluforritum. Mismunandi skjalasnið krefjast þó mismunandi aðferða.
| Snið | Lýsing | Staða |
|---|---|---|
| .doc, .ppt, .xls | Word- og OpenOffice-skjöl | Já |
| .odt, .odp, .ods | OpenDocument-skjöl, til dæmis fyrir OpenOffice og GoogleDocs | Já |
| .docx, .pptx, .xlsx | Office 2007 skráasniðin | Nei, því miður |
| Portable document format | Já | |
| .png, .jpg, .gif | Myndskrár | Já |
| .eps, .fh8 | Freehand- og Photoshop skjöl | Já |
| Önnur snið | Hafðu samband |
Yfirlestur á hefðbundnum texta, svo sem námsritgerðum, kostar 1400 kr. fyrir hver 1000 orð. Við rukkum að lágmarki fyrir 1000 orð. Við veitum magnafslátt.
Við lesum yfir námsritgerðir af öllum skólastigum. Við höfum reynslu meðal annars úr félagsfræði, lyfjafræði, hagfræði, uppeldisfræði og mannfræði, svo eitthvað sé nefnt.
Nemar fá 15% afslátt af taxtaverði. Svo við notum orðalag úr olíubransanum stingum við djúpt (veitum sérlega góðan afslátt) þegar við fáum nokkrar ritgerðir eða mörg verkefni frá sama nemanda. Ódýr heildarlausn myndi einhver segja, en ekki við, því við kunnum ekki við klisjur.
Við getum líka gefið fast verðtilboð í stærri ritgerðir og lokaverkefni.
Fyrir önnur verk, vefsíður og texta sem þarfnast meiri vinnu gerum við föst verðtilboð fyrirfram. Taxtaverð fyrir vefsíður er 2000 kr. fyrir hver 1000 orð, eilítið hærra en í venjulegum texta vegna þess að textar eru jafnan styttri á vefsíðum og tímafrekara að leiðrétta.
Niðurstöðurnar hér fyrir neðan eru bara til viðmiðunar og eru reiknaðar í fljótheitum.
Við sendum venjulegan reikning á pdf-sniði með tölvupósti. Við tökum ekki seðilgjald eða nokkuð slíkt.
Vegna þess að þetta er bara íhlaupavinna hjá okkur leggst enginn virðisaukaskattur á vinnuna.
Sendu okkur bara tölvupóst:
Þú færð fast verðtilboð sem þú þarft að samþykkja áður en við byrjum. Við svörum þér innan 6 klukkustunda. Þegar þú hefur samþykkt verðtilboðið skilum við af okkur innan 6 klukkustunda ef lengd textans er undir 2000 orðum.