Author: ihh

  • Leyfisskyld lyf: hver er innkaupastjórinn?

    Síðan í vor hef ég á vegum Frumtaka, samtaka frumlyfjaframleiðenda, unnið að skrifum á skýrslu um leyfisskyld lyf. Leyfisskyld lyf eru þau lyf sem eru dýr og vandmeðfarin, og gilda um þær sérstakar reglur. Þannig hljóta þau ekki greiðsluþátttöku ríkisins nema með samþykki Lyfjagreiðslunefndar og notkun þeirra er háð því að skrifaðar hafi verið formlegar klínískar…

  • Hversu dýr myndi Hafliði allur?

    Í fyrirlestrum sem ég hef haldið upp á síðkastið hef ég oft brugðið upp úrklippu úr blaði Hjartaverndar frá 1997 (bls. 46), þar sem Dr. Sigurður Samúelsson fjallaði um deilur Hafliða Mássonar og Þorgils Arasonar á Alþingi árið 1120. Um deilurnar var svo upprunalega fjallað í Þorgils sögu ok Hafliða. Grein Sigurðar er skemmtileg aflestrar og…

  • Tvö nýleg viðtöl

    Á sama hátt og íslenskir fjölmiðlar birta fréttir erlendra fréttamiðla um Ísland, birtir blogg ÍHH fréttir um ÍHH í öðrum miðlum. Nýverið hafa tvö viðtöl verið birt við mig. Annað viðtalið var í kvöldfréttum Stöðvar 2, þar sem farið var yfir meistararitgerð mína í hagfræði. Ritgerðin, sem komst í fréttirnar í sumar, er ýmsum takmörkunum…

  • Fyrirlestur á doktorsnemaráðstefnu

    Seigla, félag doktorsnema á Félagsvísindasviði heldur ráðstefnu föstudaginn 5. september kl. 12:00-17:00 á Hótel Sögu, Heklu 1. Ykkar einlægur flytur þar fyrirlestur (já, önnur afar langsótt vísun í Þórarin Eldjárn!) um hryggþófahrörnun (og þennan pappír hér). Ráðstefnan er haldin í samvinnu við félag doktorsnema og er öllum opin og aðgangseyrir enginn. Boðið verður upp á léttar…

  • Ebóluhagfræði

    Ég hef lengi haldið að The Economist hefði einkaleyfi á að búa til -onomics orð (sbr. kreppanomics) en The New Yorker virðist vilja vera með í leiknum og setur nú fram Ebolanomics. Í nýrri grein eru hvatarnir á bakvið lyfjaþróun útskýrðir nokkuð vel. Þannig er til dæmis bent á að út frá sjónarhóli lyfjafyrirtækja sé…

  • Ráðstefna í heilsuhagfræði

    Í vikunni er haldin í Reykjavík ráðstefna norrænna heilsuhagfræðina, Nordic health economists’ study group. Ráðstefnan er að mestu haldin í Háskóla Íslands, þar sem einnig fór fram námskeið Teódórs Joyce um hagrannsóknir. Sjálfur hef ég ekki neitt sérstakt fram að færa af mínum verkum, en hleyp inn í dagskrána til að kynna eina ritgerð auk þess að…

  • Meistari allra meina

    Fyrir þá sem koma inn í heilsuhagfræði úr hagfræðiáttinni eru víða stórir helgidagar í þekkingunni á læknisfræði. Þá er mikilvægt að taka beint og horn á bola og byrja að snúa hann niður, svo snúið sé útúr vísu eftir Þórarin Eldjárn. Góð leið til að kynnast krabbameini er að lesa The emperor of all maladies eftir Siddhartha Mukherjee.…

  • KVALræði

    Almennt hefur verið viðtekið í heilsufræðilegu hagkvæmnismati að reyna að leggja sem minnst gildismat í útreikninga og eftirláta lesendum og þeim sem taka ákvarðanir á grundvelli hagkvæmnismats að túlka þær út frá sínu gildismati eða viðteknu gildismati. Þetta þýðir að kostnaður og ávinningur meðferða er reiknaður út án þess að lagt sé lögfræði- eða siðferðismat…

  • Getnaðarvarnir eru ekki kostnaðarvirkar—eða sko, það fer eftir sjónarhorninu

    Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur verið mikið í fréttum upp á síðkasti vegna málaferla sem tengjast fyrirtækinu Hobby Lobby. Í stuttu máli fjallar málið um það hvort fyrirtæki geti af trúarlegum ástæðum neitað að láta sjúkratryggingu starfsmanna sinna niðurgreiða getnaðarvarnir.

  • Ofurdýru meðferðirnar vekja erfiðar spurningar

    „Hvar á að draga mörkin, eða á að draga mörkin? Þetta er ekki eitthvað sem Landspítalinn getur einn ákveðið eða Sjúkratryggingar. Það þarf þarna aðkomu stjórnvalda og almennings, umræðu sem er einnig byggð á siðfræðilegum grunni. Hvernig á að forgangsraða? Auðvitað þarf að ræða almennt um forgangsröðun í heilbrigðiskerfinu, en vandamálið um forgangsröðun kemur sérlega…